top of page
nóv 2026 (1).png

Barre Sól:

Hreyfing sem byggir upp styrk og stöðugleika, bætir líkamsstöðu og hjálpar þér að tengjast líkamanum betur. Mismunandi útfærslur gera öllum kleift að taka þátt á sínum eigin forsendum. Við notum barre stangir og fjölbreytt áhöld eins og t.d lóð, bönd, og barre bolta

​

Barre Sculpt:

Tími þar sem áhersla er lögð á að móta, styrkja og tóna líkamann með æfingum með eigin líkamsþyngd og léttum lóðum. Unnið er með jafnvægi, líkamsstöðu og liðleika á sama tíma og styrkur og úthald byggjast upp. Peppandi og orkumikill tími með skemmtilegri tónlist sem gefur aukinn kraft og góða stemningu.

​

Jógaflæði og slökun: 

Í tímanum leiði ég ykkur inn í rólegt en styrkjandi flæði. Við tökum einnig góðar yin jóga teygjur áður en við förum inn í slökun í lok tímans. Það er markmiðið okkar að njóta saman símalaus, í kyrrð og í takt við okkur sjálf. Endurhlaða orkuna okkar sem gefur okkur gott jafnvægi inn í helgina.

Power Jóga:

Kraftmikið jógaflæði þar sem við tengjum saman öndun, styrk, djúpar teygjur og núvitund. Áhersla er á meðvitaða hreyfingu þar sem við finnum jafnvægi milli áskorana og slökunar. Tímanum lýkur á djúpri slökun. Tíminn hentar bæði byrjendum og lengra komnum, þar sem hver og einn getur aðlagað stöðurnar að eigin getu.

​

Jógaflæði:

Tími þar sem við tengjum saman öndun og hreyfingu. Við flæðum á milli líkamsstaða með áherslu á styrk, liðleika og jafnvægi. Tíminn eflir líkamsvitund og lýkur á djúpri slökun. Hentar öllum getustigum.

​

Yin Jóga:

Þar sem áhersla er á djúpar teygjur og kyrrð. Við höldum hverri stöðu í 3–5 mínútur til að gefa líkamanum tíma til að slaka á og losa um spennu. Jafnframt æfum við innri kyrrð, eflum líkamsvitund og dýpkum tengslin við líkama og huga.

Jóga Styrkur og jafnvægi:

Tími þar sem við byggjum upp styrk í öxlum, handleggjum, kvið og brjóstkassa, undirbúningur fyrir handstöður og aðrar stöður á hvolfi. Við nýtum öndunina til að styðja við hreyfinguna, eflum jafnvægi, núvitund og byggjum upp styrk, stöðugleika og líkamsstjórn skref fyrir skref. Tímanum lýkur á djúpri slökun og hentar öllum getustigum.

bottom of page